Mig setur hljóðan!

Það er alveg sama hvað á í hlut í náttúru Íslands, virðingarleysi og skemmdarfýsn er nokkuð sem er svo ríkjandi í þjóðfélaginu. Ég get ekki tjáð með orðum hversu sárt mér þykir komið fyrir okkar kæra landi. Náttúran á ALLTAF að njóta vafans, en því miður vegna græðgi fárra einstaklinga er öllu rutt úr vegi sem hugsast getur til að búa til nokkra auma seðla.

Ríkir vilja verða ríkari því nóg verður aldrei nóg í þeirra huga, og ekkert skal standa í vegi þeirra til að ná sínu framgengt, EKKERT. Höfum við ekkert lært hvað færðu Kárahnjúkar okkur? Hvernig verður umhorfs í Fljótsdalshéraði eftir 20 ár? Þarf þá að endurræsa sandgræðsluna? Hvað með börnin mín mega þau ekki sjá þau fallegu héruð og svæði sem ég hef fengið notið. Hvað verður eftir? Allavega ekki sogið sem nýverið er búið að skemma.

 Við sem þjóð verðum að fara spyrja okkur alvarlegra spurninga einsog hvert stefnum við og hvað viljum við gera þegar komið er á áfanga stað?


mbl.is Umhverfisspjöll við Sogalæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

"hvað færðu Kárahnjúkar okkur?"  hvað? hefuru komið austur nýlega? Mikil uppbygging og allt annað um að lítast þar en áður en farið var í virkjun.

Sveinn Ágúst (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband