6.9.2009 | 23:44
Mig setur hljóðan!
Það er alveg sama hvað á í hlut í náttúru Íslands, virðingarleysi og skemmdarfýsn er nokkuð sem er svo ríkjandi í þjóðfélaginu. Ég get ekki tjáð með orðum hversu sárt mér þykir komið fyrir okkar kæra landi. Náttúran á ALLTAF að njóta vafans, en því miður vegna græðgi fárra einstaklinga er öllu rutt úr vegi sem hugsast getur til að búa til nokkra auma seðla.
Ríkir vilja verða ríkari því nóg verður aldrei nóg í þeirra huga, og ekkert skal standa í vegi þeirra til að ná sínu framgengt, EKKERT. Höfum við ekkert lært hvað færðu Kárahnjúkar okkur? Hvernig verður umhorfs í Fljótsdalshéraði eftir 20 ár? Þarf þá að endurræsa sandgræðsluna? Hvað með börnin mín mega þau ekki sjá þau fallegu héruð og svæði sem ég hef fengið notið. Hvað verður eftir? Allavega ekki sogið sem nýverið er búið að skemma.
Við sem þjóð verðum að fara spyrja okkur alvarlegra spurninga einsog hvert stefnum við og hvað viljum við gera þegar komið er á áfanga stað?
|
Umhverfisspjöll við Sogalæk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2009 | 14:22
Byrja aftur að skrifa!
Kæra blogg ég hef verið í lægð með skriftirnar, skólinn og já bara lífið hefur tekið sinn toll. Lúxus einsog það að setjast við tölvuna og skrifa hefur setið á hakanum. En nú hefur löngunin tekið öll völd og ætla ég mér að skrifa smá klausu í dag og kannski líka næstu daga eða vikur.
Það sem mér liggur mest á hjarta þessa dagana er sú spurning hvort ég hafi breytt rétt með því að ganga til liðs við VG vera ötull talsmaður flokksins, hvatti foreldra mína (sem eru ellilífeyrisþegar) og alla aðra fjölskyldumeðlimi til að kjósa flokkinn. Ég taldi þetta fólk í trú um það að það væri alveg öruggt að þessi flokkur myndi standa vörð um fjölskyldur landsins, náttúruna og auðlindirnar. Að VG væri sá flokkur sem væri óspilltastur og kæmi fram með hreint borð. Á stundum upplifði ég mig vera talsmann Maós, heitan fylgismann stefnu sem væri sú eina og rétta. En ég er farin að efast.....!
Ég vil láta veturinn líða og sjá til hvort ég breytti rétt þó svo að fræ efans hafi verið sáð í huga minn. Hugsanir einsog breytti ég rétt, get ég fylgt fólki sem lætur undan hópþrýstingi, er það rétt að þetta fólk sem ég kaus viti nógu mikið um landbúnað, sjávarútvegsmál, náttúrumál o.s.frv. Get ég treyst því að einmitt þetta fólk sem ég kaus á þing sé svo sterkt að það standi vörð um náttúruauðlindir lands og sjávar, fjölskylduna, heilbrigðisþjónustuna og svona mætti lengi telja. Að VG verði ekki flokkur spillingar og hagsmunapots. Nú þegar hef ég fengið efasemdir um heilindi þingmanna VG, að hagsmunapot eigi sér stað innan raða VG alveg einsog í hinum stjórnmálaflokkunum okkar. Þegar maður sér að eitt hérað fær meiri velyrði fyrir peningum en annað vegna þess að ákveðnir pólitíkusar koma úr því héraði þá upplifir maður sig auðmýktan.
Það sem umræðir hér er í stuttu máli sagt, get ég treyst því að þeir sem ég kaus á þing hugsi breitt, jafnt og lýðræðislega um ALLA þegna þessa lands. Að hagsmunapot verði lagt til hliðar fyrir almannagæðum til handa öllum. Get ég treyst því að ég sjái ekki eitt hérað í þessu landi hagnast á því að ákveðinn stjórnmálamaður úr því héraði sendi alla peningana heim til sín bara að því að hann er þaðan. Get ég treyst því að þó svo mitt hérað sé ekki með fulltrúa inná þingi fái notið sömu kjara og önnur héruð, að háskólar og aðrar ríkisstofnanir fái notið sín nú sem áður. Að séð verið til þess að samgöngur fái notið jafnræðis, að heilbrigðiskerfið sé jafn gott í mínu héraði og hinum! þó svo að mitt hérað hafi engan talsmann inná þingi.
Niðurstaðan er semsagt þessi, ég veit ekki hvort ég get treyst þeim sem ég studdi og kaus inn á þing? Ég veit ekki hvort að ég geti treyst VG fyrir þjóðinni og landinu. Ég spyr mig hvort að ég myndi ráða VG sem aupair inná mitt heimili, til að passa börnin mín, þvo og sjá um bókhaldið. Svarið er ég ræð VG á reynslulausn og fæ svar við mínum efasemdum innan tíðar. Staðið eða Fallið!
Takk fyrir í dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 11:10
Axla ábyrgð?
Bjarni Harðarson axlar ábyrgð, hvernig væri að aðrír pólitíkusar myndu gera slíkt hið sama.
Svo einfalt er þetta í dag að allir sem sitja í ráðherrastólum eru óhæfir. Sá veldur er á heldur. Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn eiga allir hlut að máli þið sáuð um alla undirbúningsvinnuna fyrir gjaldþrot okkar Íslendinga, undirbúingur sem var aðgerðarleysi og viljaleysi. Að síðustu mistök á mistök ofan.
Flestir ráðamanna á Íslandi eru rúnir trausti okkar almennings og svo verður þangað til að þeir taka fordæmi Bjarna og segja afsér hið snarasta. Þetta á við um ALLA ráðamenn ríkisstjórnar. Einnig væri nú gott að fara sjá þingheim fara haga sér einsog það sé staður þar sem mikilvægar ákvarðanir séu teknar alvarlega.
Þingmenn eru lýðræðislega kjörnir en hafa lýðræði að engu um leið og stigið er inní þingsal. Þingmenn þið hafið líf okkar landsmanna í höndum ykkar en virðið það að vetthugi.
Afhverju á ég að vera með timuburmenn þegar mér var ekki einu sinni boðið í veisluna?
Ég treysti ekki ríkisstjórninni og er hrædd um málfrelsið hér í bananalýðveldinu Íslandi.
|
Guðni: Bjarni axlar ábyrgð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2008 | 11:10
Sammála!
Mikið rosalega er ég sammála Steingrími J. Sigfússyni, og mikið innilega vona ég að þessi óskapa ríkisstjórn sem sytur nú við völd fari frá og hleypi VG að. Já það væri gott að fá nýja menn í brúnna, þessi sem þar eru núna eru búnir að sökkva skútinni og eru blautir, kaldir og hraktir, komnir með kuldakrampa og hugsa ekki rökhugsun, hugmyndir einsog lán frá Rússum er ekki rökhugsun.
Það yrði algjört glapræði að fá lán fá þessum glæpastjórnvaldamönnum einsog hæstvirtum forsætisráðherra Pútín. Hvernig eiga réttmæt mótmæli einsog gangvart stríði og öðrum glæpatvikum, sem þessir rússnesku stjórnmálamenn standa fyrir, að fara fram.
Hvað verður um hið dýrmæta málfrelsi okkar ef við fáum lán frá mönnum einsog Pútín?
Það er klárt að þeir sem eru við völd hér á landi eru bara ekki með fullum ráðum, þvi væri gott að fá nýja ríkisstjórn við völd núna STRAX.
|
Steingrímur J: Biðlar til norskra stjórnvalda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2008 | 12:08
Skammist ykkar stjórnendur þessa lands!
Ég upplifiði særindi, reiði og vonbrigði er ég las þessa frétt, þetta gat ekki verið satt, þvílíkt klúður hjá Norðlenska, hvað er planið! Bændur mega framleiða, en ekki lifa sómasamlegu lífi af afurðum sínum.
Hvers á íslenskurlandbúnaður að gjalda, og já við erum að framleiða hágæðavöru, ekki eru íslenskir bændur að skera rassgötin á fénusínu vegna hræðilegra ræktunargalla, eða hafa féð í pínulitlum fatfeeding hólfum.
Nei íslenskt fé fær að ganga um heiðarnar, frjálsar á sumrin og lifa heilbrigðu lífi. Ég seigi nei takk við erlendu kjöti þar sem það er vitað að skepnur eru píndar frá fæðingu til dauða, meðferð, uppeldi og slátrun er ein stór hörmungarsaga.
Skil ekki alveg stefnu íslenskrastjórnvalda, bændasamtaka og afurðastöðva, afhverju er engin til að standa vörð um íslenskabændur, afhverju þarf alltaf að vera pína þá sem minnst hafa, þá sem vinna af hugsjón, stefnan núna er klárlega sú að drepa allt sjálfstæði, það er búið að taka fiskikvótann og selja hann, heilu þorpin standa eftir atvinnulaus, og nú er bara eftir að leggja sveitirnar í eyði.
Skammist ykkar stjórnendur þessa lands, það hefði átt að vera búið að stoppa þessa þróun fyrir löngu, og leyfa bændum að ráða því á hvað þeir seldu sitt kjöt, hvert þeir seldu það, í stað þess að sífelt leggja gildrur fyrir þá, þá ættu stjórnendur þessa lands, ráðamenn bændasamtakanna sjá til þess að bændur ættu greiðan aðgang markaðsetningar á afurðum sínum. Erlendis eru kaupendur sífelt að byðja um meiri af lífrænumafurðum, í Danmörku hafa lífræntræktandi bændur ekki undan, sem og það er klár stefna EU að auka hag lífræntræktandi bænda, og hvað er okkar framleiðsla á lambakjöti annað en Lífrænt - Vistvænræktun.
Ég er ekki enn farin að trúa því að þetta sé SATT!
|
Rekstrargrundvöllur brostinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2008 | 11:10
Mikill vill meira og meira verður aldrei nóg!
Auðvitað átti ekki að leyfa Lundaveiði í ár, hvernig gátu menn verið svona skilningslausir, Lundinn, krían, langvían, stuttnefnan og fleiri fulgar, varp þeirra mistókst í sumar því var það mér algjörlega óskiljanlegt er ég sá frétt um það að Vestmannaeyingar ætluðu samt að veiða Lunda, hvað þarf til!
Fuglinn þolir ekki massíva veiði núna þegar ástandið er svona slæmt, og þá verður bara að kæla niður þessa miklu drápsþörf, því við á íslandi verðum ekki hungurmorða þó svo að við veiðum ekki Lunda, og ég gef nú ekki mikið fyrir einhverjar hefðir.
Ég vona líka innilega að rjúpan verði friðuð nú í ár, og að massívar veiðar á hvaða dýrategund sem er verði stöðvaðar, það er ekkert að því að veiða í soðið en þeir sem eru að veiða hundruði dýra það er óeðlilegt og að mínumati ógeðfelt, sýnir græðgi mannskepnunnar að mikill vilji ávalt meira og að meira verði aldrei nóg.
Sýnum aðgát og göngum vel um náttúruna sem og skepnur hennar, við eigum ekki landið og dýrin heldur erum við öll hér sem gestir. Sýnum því fyllstu kurteisi.
|
Veiðin aðeins brot af því sem verið hefur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.8.2008 | 11:21
Tilgangur töflunnar?
Þessi tafla er ætluð sjúklingum? auðvitað er hægt að misnota allt þó svo að upprunalegi tilgangurinn sé góður, svo afhverju var ekki hægt að kynna töfluna sem frábæra töflu í baráttunni við vöðvarírnun. Hvernig fréttin er maddreidd þá er það ljóst að hin eini og sanni tilgangur töflunnar sé sá að gera alla sæta, stælta og mjóa, betri, úthaldsmeiri og frábærari.
Verum eins? eða verum bara við sjálf, líkamsrækt er afar mistúlkuð sem "Líkams"rækt, ætti miklu fremur að heita "hugar"rækt, þar sem andlegi hluti líkamsræktar er svo stór, eftir t.d góðan púl tíma (spinning, pump, eða bara göngutúr) öðlast maður með meiri andlegri orku, sjálfsstraustið eykst því maður fær góða tilfinningu fyrir sjálfum líkamanum, og allt virkar miklu yfirstíganlegra. Því er ég viss um að það sé afar lítill hópur fólks sem hoppar frá góðri heilbrigðri hreifingu yfir í stórfelt töfluát afþví að það vill vera svona eða hinsegin. Þar "tel" ég að þeir sem stunda líkamrækt, hafi það sem lífstíl að lifa heilbrigðu lífi.
Tilgangurinn helgar meðalið!
|
Líkamsrækt í töfluformi? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2008 | 10:56
Ekki er öll vitleysan eins!
Tófa beit konuna án þess að hún fyndi fyrir þeim sársauka sem fylgir því að láta bíta sig, heldur tók hún eftir því að það fór að blæða úr sárinu? Ja sko ekki er öll vitleysan eins.
Er 1. apríl í dag? Hefur konuræfillinn ekki bara rifið sig á runna eða vír? hvernig í ósköpunum á rebbi litli að geta bitið einhvern án þess að hann fyndi fyrir því? Og voðalega er þetta hugrakkur rebbi, þeir sem ég hef séð eru afar mannfælnir og þó svo þeir sjái illa blessaðir þá finna þeir fnykinn sem liggur af okkur mannfólkinu og halda sig ávalt í hæfilegri fjarlægð frá okkur!
Ótrúlegt hvað fólki getur dottið í hug að láta hafa eftir sig!
|
Tófa beit konu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2008 | 13:13
Rusl kemur okkur við!
Við vinnu mína sem Landvörður í sumar, þá hefur stór hluti vinnunar farið í það að tína rusl, sígarettustubbarnir eru verstir, svo eru það pissu- og snýitbréfin sem virðast aldrei geta ratað í vasa eigenda sinna, einnig tínum við mikið af nammibréfum og stundum eftir helgar eru heilu ruslapokarnir skildir eftir við opin náttúrusvæði þar sem tjaldað hefur verið til einnar nætur. Af hverju er gengið svona illa um náttúruna spyr ég mig á hverjum degi! Ég vildi mikið frekar verja tíma mínum í að gera göngustíga, leiðsaga fólk um náttúrusvæðisins o m. fl. allt annað en að þurfa verja heilu og hálfu dögunum í ruslatínslu.
Ekki ætla ég að pretika um það hverjir það eru sem skilja eftir sig ruslið heldur vekja til umhugsunar hispursleysi almennings á eigum sínum, því jú við eigum öll þessa náttúru. Að ganga fallega leið að náttúruperlu og þurfa horfa uppá sígarettubréf og stubba, pappír, poka og gosdósir/flöskur er ógeðfelt, óréttlátt og segir til um skilningsleysi okkar á umhverfinu og náttúrunni. Ég er farin að trúa því að gróðurhúsaáhrifin vegna hlýnunnar jarðar sé minna vandamál er ruslið, ef fram heldur sem horfir þá druknum í rusli.
Sýnum náttúrinni tillitssemi og alúð, göngum vel um svo allir fái að njóta þess að vera í náttúrunni næstu ár og aldir.
Hættum að benda á hvort annað og segja að þessi og hinn gerði hitt og þetta, hættum að henda rusli, tökum ruslið okkar með okkur í sorpu, við berum ábyrgð á því að hafa tekið rusl með okkur útí nátturuna, sýnum því náttúrunni virðingu og förum með það í örugga sorphreinsistöð.
Ef rusl verður á vegi þínum taktu þáð þá upp og komdu því til Sorpu, því rusl í náttúrunni kemur okkur öllum við
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2008 | 11:29
Til hvers að ræða við Friðrik?
Góð hugmyndfræði hjá Saving Iceland, ekki tala við Friðrik, það er ekki um neitt að ræða samtökin standa fyrir einföldum hlut að bjarga Íslandi. Auðvitað má deila um það hvort rétt sé að fara heim til Friðriks eður ei. Ég tel samt hugmynda góða að hafa gert það, alveg einsog Landsvirkjun ætlar að hafa áhrif á fjölda heimila sem liggja langs Þjórsá, er það ekki líka frekja?
Hvort er dónalegra, Saving Iceland fara heim til Friðriks sem er jú forstjóri Landsvirkjunar, eða Landsvirkjun taka eignarnámi vegna virkjanaframkvæmda, er það ekki líka truflun fyrir fjölskyldur landsins? Erum við kanski að tala um að sr. Jón fái aðra meðhöndlun en allir hinir venjulegu Jónarnir, hvernig flokkum við Friðrik?
Ég styð málfrelsi, athafnafresli og frelsi íslenskrarnáttúru, allir eiga sama rétt.
|
Höfum ekki þörf fyrir að ræða við Friðrik |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)







